Fréttir



GAMMA flytur starfsemi sína á Garðastræti 37

24.2.2014 Starfsemi

GAMMA hefur flutt starfsemi sína á Garðastræti 37. Um er að ræða stærra húsnæði sem gerir félaginu enn betur kleift að sinna vaxandi starfsemi sinni og taka vel á móti viðskiptavinum.

 

GAMMA hefur flutt starfsemi sína á Garðastræti 37

Eftir 5 ár á Klapparstíg 29 hefur GAMMA flutt starfsemi sína í eigin húsnæði á Garðastræti 37. Um er að ræða stærra húsnæði sem gerir félaginu enn betur kleift að sinna vaxandi starfsemi sinni og taka vel á móti viðskiptavinum.

Fjármálafyrirtækið GAMMA er með um 45 milljarða í sjóðastýringu fyrir hundruði viðskiptavina þar á meðal lífeyrissjóði, tryggingafélög, eignastýringar, bankastofnanir, erlenda aðila og efnameiri einstaklinga.

Einnig sinnir GAMMA ráðgjöf og hefur á undanförnum árum verið ráðgefandi Alþingi, ráðuneytum og öðrum opinberum aðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum, Landsvirkjun og mörgum fleirum. Hjá GAMMA og tengdum félögum starfa 22 starfsmenn.

Garðastræti 37 er meðal elstu funkishúsa landsins og hýsti meðal annars lengi vel starfsemi Síldarútvegsnefndar.

Símanúmer félagsins er hið sama og áður 519-3300

 

Senda grein