Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA desember 2013

2.12.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok nóvember, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir desember.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,9% í nóvember og hefur nú hækkað um 3,8% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 0,8% og hefur hækkað um 3% á árinu og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi lækkaði um 1,3% og hefur hækkað um 6% það sem af er ári. Meðaldagsveltan var um 8,2ma og hefur verið um 7,1ma að meðaltali frá áramótum. 

Litlar breytingar eru á vigtum skuldabréfavísitölunnar fyrir desember, en gefnir voru út ríflega 3ma. í RIKB31 í síðastliðnum mánuði. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 28,9% sem er 0,1% hækkun frá október mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 11ma og er nú 1.446ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,2 og er nú 8,7ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein