Fréttir



GAMMA styrkir Sinfóníuhljómsveit Íslands

28.10.2013 Samfélagsmál

Fjármálafyrirtækið GAMMA verður aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstu þrjú árin.

Fjármálafyrirtækið GAMMA verður aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljomsveitar Íslands næstu þrjú árin. GAMMA hefur verið meðal styrktaraðila Sinfóníunnar síðastliðin tvö ár en verður nú eini aðalstyrktaraðili hljómsveitarinnar.

Samkomulagið var undirritað nú nýverið af Gísla Haukssyni forstjóra GAMMA og Örnu Kristínu Einarsdóttur framkvæmdastjóra Sinfóníunnar.

,,Það er okkur sérstakt ánægjuefni að fá fyrirtæki eins og GAMMA til liðs við okkur." segir Anna Kristín. ,,Á undanförnum tveimur árum hafa forsvarsmenn GAMMA sýnt að þeir hafa raunverulegan áhuga á hljómsveitinni og starfi hennar. Það er okkur mikils virði að njóta stuðnings slíkra aðila."

,,Metnaður og hæfileikar Sinfónínuhljómsveitarinnar fara vel saman við markmið GAMMA" segir Gísli, ,,Því er það okkur hjá GAMMA mikill heiður að geta stutt við bakið á hljómsveitinni á komandi árum."

Samningur GAMMA og Sinfóníunnar hefur þegar tekið gildi og stendur fram til haustsins 2016 og verður fyrirtækið eini aðalstyrktaraðili hljómsveitarinnar á tímabilinu. 

Senda grein