Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA október 2013

2.10.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok september, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir október.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,03% í september og hefur nú hækkað um 5,5% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 0,2% og hefur hækkað um 5,3% á árinu og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,4% og hefur hækkað um 6,2% það sem af er ári. Meðaldagsveltan var um 6,6ma og hefur verið um 7,3ma að meðaltali frá áramótum. 

Gefin voru út bréf í flokkum RIKB22 og RIKB31 og hækkaði því hlutfall þeirra í vísitölunni. Jafnframt dettur RB14 út úr vísitölunni þar eð styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði og er nú 28,5% sem er 0,5% lækkun frá síðustu mánaðamótum. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 14ma og er nú 1.484ma. Líftími vísitölunnar hækkaði lítillega og er nú 8,9 ár.
 
Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.
Senda grein