Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA ágúst 2013

2.8.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok júlí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir ágúst.
Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 2,2% í júlí og hefur nú hækkað um 4,7% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 2,9% og hefur hækkað um 4,3% á árinu og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,2% og hefur hækkað um 6,0% það sem af er ári. Meðaldagsveltan var um 4,1ma og hefur verið um 7,8ma að meðaltali frá áramótum.
 
Engar afborganir né vaxtagreiðslur áttu sér stað í júlí, en gefin voru út bréf í flokkum RB15, RB22 og RB31 og hækkaði því hlutfall þeirra í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hélt áfram að hækka og er nú 28,9% sem er 0,1% hækkun. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 45ma og er nú 1.493ma. Líftími vísitölunnar hélst óbreyttur og er 8,8 ár.
 
Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.
Senda grein