Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA júní 2013

4.6.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok maí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir júní.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 1,5% í maí og hefur nú hækkað um 3,5% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,8% og hefur hækkað um 2,8% á árinu og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,8% og hefur hækkað um 5,5% það sem af er ári. Meðaldagsveltan tók aftur við sér í maí og var 9,6ma og hefur verið um 9ma að meðaltali frá áramótum.


Gefnir voru út 12,2ma í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum í maí; 5,8ma í RB15 og 6,4ma í RB22 og hækkuðu vigtir þeirra um 0,4%. Engar greiðslur afborgana eða vaxta áttu sér stað. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hélt áfram að hækka og er nú 28,5% sem er 0,4% hækkun frá apríl mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 35ma og er nú 1.480ma.Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 ár og er nú 8,9 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein