Fréttir



Mánaðaryfirlit Skuldabréfavísitölur GAMMA maí 2013

2.5.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok apríl, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir maí.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,6% í apríl og hefur nú hækkað um 1,9% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 1,2% og hefur hækkað um 0,9% á árinu og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,8% og hefur hækkað um 4,6% það sem af er ári.

Meðaldagsveltan í apríl lækkaði frá maí mánuði og var 5,3ma og hefur verið um 8,8ma að meðaltali frá áramótum.

Gefið var út 12,3ma í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum í apríl; 7,1ma í RB31 og 5,2ma í RB15. Einnig var greidd afborgun og vextir af HFF34 og RIKS21 og minnkuðu vigtir þeirra lítillega.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 1,3% í 28,1%. Hefur það hækkað undanfarna 5 mánuði frá því það náði lágmarki í 25,2%.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 8ma og er nú 1.445ma og líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 ár og er nú 9,0 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein