Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA nóvember 2012

1.11.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok október, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir nóvember.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 1% í október og er hækkun hennar það sem af er ári 7,3%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 0,9% og hefur hækkað um 8,2% á árinu og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,1% og hefur nú  hækkað um 5,4% á árinu. 

Meðaldagsveltan í október var um 5ma og hefur meðaldagsveltan verið tæpir 11ma það sem af er ári.

Smávægilegar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar. Gefið var út 2ma í RB14 og 2,6ma í RB31 en engin útgáfa var af verðtryggðum skuldabréfum. Einnig voru greiddir vextir af RB16 og RB22 og afborgun og vextir af HFF34. Lækkuðu því vigtir þessara flokka á móti öðrum og hækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa um 0,1% í 28,8%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 6ma og er nú 1.512ma og líftími hennar lækkaði í 8,9 ár, úr 9 árum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein