Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA ágúst 2012

2.8.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok júlí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir ágúst

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 1,3% í júlí og er árshækkun hennar 4,3%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,5% og hefur hækkað um 4,9% á árinu en óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,9% og hefur nú hækkað um 3,2% á árinu. 

Meðaldagsveltan í júlí var um 5ma og hefur meðaldagsveltan verið 11ma það sem af er ári. 

Mjög litlar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar. Gefið var út 1,9ma í RB14 og 2,2ma í RB22 en engin útgáfa var af verðtryggðum skuldabréfum og hækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa um 0,1% í 27,9%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 23ma og er nú 1.474ma og líftími vísitölunnar styttist lítillega í 8,95 ár.   

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.   

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein