Fréttir



Kostnaðurinn hefði orðið 80 milljarðar

12.4.2012 Skoðun

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um kostnað vegna Icesave III og m.a. rætt við Valdimar Ármann hagfræðing og fjármálaverkfræðing hjá GAMMA.

Innlent | Morgunblaðið | 12.4.2012
Kostnaðurinn hefði orðið 80 milljarðar

Hefði síðasti Icesave-samningur verið samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir ári, hinn 9. apríl 2011, væri kostnaður Íslands í dag orðinn ríflega 50 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í útreikningum sem fjármálafyrirtækið GAMMA gerði fyrir Morgunblaðið og fjallað er um í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag. Við þá upphæð myndu síðan bætast 28 milljarðar í vaxtagreiðslur til ársins 2015.

Heildarkostnaður vegna Icesave hefði því numið hátt í 80 milljörðum. Það er umtalsvert hærri upphæð en áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar

Frekari umfjöllun má finna hér.

Senda grein