Fréttir



  • HB-Pciture

Helgi Bergs stýrir starfsemi GAMMA í Sviss

25.5.2017 Starfsemi

Stefnt er að opnun skrifstofu GAMMA í Sviss síðar á þessu ári.

GAMMA Capital Management hefur ráðið Helga Bergs til að stýra starfsemi félagsins í Sviss en stefnt er að opnun skrifstofu GAMMA í Zurich í Sviss síðar á þessu ári. Helgi mun jafnframt vinna með öflugum hópi fyrirtækjaráðgjafar hjá GAMMA, en það teymi telur nú samtals átta starfsmenn, í Reykjavík, London, New York og nú Sviss.

Helgi hefur tveggja áratuga reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann stýrði fjárfestingabankastarfsemi Kaupþings samstæðunnar frá London á árunum 2005 til 2008 og var þar áður framkvæmdastjóri Kaupþings í London. Helgi starfaði áður hjá Iceland Seafood International og hefur á undanförnum árum stýrt miðlunarstarfsemi verðbréfafyrirtækisins Birwood í London.

„GAMMA hefur lagt mikla áherslu á að efla alþjóðlega starfsemi félagsins í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta til auka úrval fjárfestingarkosta erlendis. GAMMA hóf starfsemi í London árið 2015 og vinnur að opnun skrifstofu í New York. Þriðja erlenda starfsstöðin verður því í Sviss og við gerum ráð fyrir að hefja starfsemi í Zürich í sumar, en það er mikið ánægjuefni að fá reynslumikinn mann á borð við Helga Bergs til þess að stýra starfseminni þar. Með öflugri fyrirtækjaráðgjöf í fjórum löndum mun GAMMA nú geta boðið íslenskum fyrirtækjum og fjárfestum upp á alhliða ráðgjöf varðandi erlend fyrirtækjaverkefni, erlenda fjármögnun og samskipti við erlenda fjárfesta,“ segir Gísli Hauksson, stjórnarformaður GAMMA.

Senda grein