Fréttir



Gísli Hauksson lætur af störfum hjá GAMMA

7.3.2018 Starfsemi

Gísli Hauksson fv. forstjóri og annar stofnenda GAMMA hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu. Engin breyting verður á hluthafahópi GAMMA.

Gísli Hauksson fyrrverandi forstjóri og annar stofnenda GAMMA Capital Management hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu. Gísli var annar stofnenda GAMMA fyrir 10 árum og stýrði í  ár vexti og uppbyggingu félagsins. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á þessum tíu árum en í lok síðasta árs var félagið með um 137 milljarða króna í stýringu og rekstrarhagnaður þess árs var sá næst besti í sögu félagsins. 

Síðan 2015 hefur Gísli verið búsettur erlendis og á þeim tíma m.a. leitt uppbyggingu á erlendri starfsemi félagsins. Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA mun fyrst um sinn hafa yfirumsjón yfir starfsemi fyrirtækisins í New York og London. Engin breyting verður á hluthafahópi GAMMA.

„Ég læt nú af störfum hjá félaginu sem ég stofnaði fyrir um 10 árum og hefur átt hug minn allan þann tíma. Á þessum tímamótum við 10 ára afmæli félagsins er gott tilefni til að breyta til og mun ég einbeita mér í ríkara mæli að öðrum verkefnum, m.a. eigin fjárfestingum og fjölskyldunnar, stjórnarsetu í fyrirtækjum og verkefnum á sviði menningarmála. Ég verð áfram stærsti einstaki hluthafi GAMMA og mun styðja við frekari vöxt og viðgang félagsins. Rekstur félagsins er í góðum höndum samstarfsmanna til margra ára og veit ég að GAMMA verður áfram í fremstu röð fjármálafyrirtækja,“ segir Gísli.

„Samstarfsfólk GAMMA þakkar Gísla fyrir samstarfið og forystuna undanfarinn áratug. Það er eftirsjá að honum úr rekstrinum en líka skilningur á því að hann vilji breyta til. Framundan eru spennandi tímar hjá GAMMA þar sem stoðir fyrirtækisins verða treystar enn frekar og ýmis stór verkefni verða leidd til lykta,“ segir Hlíf Sturludóttir, stjórnarformaður GAMMA. 

Nánari upplýsingar veitir:
Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA
valdimar@gamma.is

Senda grein