Fréttir



Vísitölur GAMMA ágúst 2017

1.9.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,45% í ágúst og nam meðaldagsveltan 6,1 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 39 milljarða og er 2.734 milljarðar.

 

 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

 

Gengi vísitalna frá áramótum


YTD-visitolur-AGU-2017

 

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,31% í ágúst og nam meðal dagsveltan 3,4 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,66% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,45%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 1,2 ma. og er nú 1.608 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,03 og er 7,92 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,72% í ágúst og nam meðaldagsveltan 907 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,78% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 849 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.960 mln nom], ISLA CBI 24 [1.220 mln nom], ISLA CBI 30 [420 mln nom], LBANK CBI 24 [3.540 mln nom], LBANK CBI 28 [3.360 mln nom], ARION CB 22 [400 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 9,5 ma. í mánuðinum og er 371 milljarðar. Líftími vísitölunnar stendur í stað milli mánaða og er 6,8 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 66,3%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA


Skipting-FT-AGU-2017

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 5,9% í ágúst og nam meðaldagsveltan 2,0 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 47 ma. í mánuðinum og er 754 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í ICEAIR (+2,8%) og GRND (+1,2%) en mest lækkun var á bréfum EIM (-14,9%) og SJOVA (-11,5%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í ágúst 2017

MOM-HLBR-AGU-2017

 Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein