Fréttir



Endurstilling Hlutabréfavísitölu GAMMA

29.12.2016 Vísitölur

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA helst óbreytt um áramótin.

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA helst óbreytt um mánaðamótin og inniheldur því enn 14 fyrirtæki: Eik, Eimskip, Haga, Icelandair, Marel, Reginn, Símann, TM, VÍS, Vodafone, N1, Reiti, Sjóvá og Granda. 

Skeljungur kemur í fyrsta sinn til greina í vísitöluna eftir skráningu fyrirtækisins á markað í desember, en velta með bréf fyrirtækisins telst ekki nægilega mikil til að það teljist gjaldgengt, enda fáir viðskiptadagar sem standa að baki. 

Samsetning GAMMA: Equity Index

Samsetning vísitölunnar tekur mið af veltumestu fyrirtækjunum, þar sem gjaldgengum fyrirtækjum er raðað upp eftir veltu seinustu sex mánaða og þau síðan valin inn í vísitöluna hvert á fætur öðru þar til 90% af flotleiðréttu markaðsvirði allra gjaldgengra fyrirtækja er komið inn í vísitöluna. Gjaldgeng fyrirtæki teljast þau fyrirtæki sem eru með a.m.k. 10% frjálst flot, gefa út hlutabréf sín í krónum og eru skráð á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland. Næsta endurstilling á sér stað mánaðamótin mars/apríl 2017.

Hægt er að óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti með því að hafa samband á gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Vísitölur GAMMA ná yfir hlutabréf, ríkisskuldabréf og skuldabréf fyrirtækja sem skráð eru í NASDAQ OMX Iceland, eða íslensku kauphöllina. Vísitölurnar eru sendar út endurgjaldslaust í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda. Söguleg gögn þeirra má nálgast á Datamarket og Bloomberg og er notkun þeirra heimil gegn því að heimildar sé getið. Allar nánari upplýsingar um Vísitölur GAMMA má nálgast á heimasíðu GAMMA hér: http://www.gamma.is/visitolur/

Senda grein