Fréttir



Breytingar í yfirstjórn GAMMA Capital Management

28.2.2017 Starfsemi

Valdimar Ármann tekur við sem forstjóri GAMMA Capital Management á Íslandi af Gísla Haukssyni nú um mánaðarmótin. Gísli tekur við sem stjórnarformaður félagsins á næsta aðalfundi og mun móta stefnu GAMMA á Íslandi ásamt því að stýra uppbyggingu starfseminnar erlendis.

Valdimar-heimasida

Valdimar Ármann tekur við sem forstjóri GAMMA Capital Management á Íslandi nú um mánaðamótin. Valdimar hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra sjóða hjá GAMMA undanfarin ár og er meðal fyrstu starfsmanna félagsins.

Gísli Hauksson, fráfarandi forstjóri og annar stofnenda GAMMA, tekur við sem stjórnarformaður félagsins á næsta aðalfundi þess. Ásamt því að móta stefnu GAMMA á Íslandi mun Gísli stýra uppbyggingu starfseminnar í New York og Lundúnum, þar sem hann hefur verið búsettur síðan 2015. 

Gislihauksson-heimasida

Samhliða þessu hefur Ingvi Hrafn Óskarsson störf hjá GAMMA sem framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga ogfyrirtækjaverkefna. Guðmundur Björnsson, sem er framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, fjármála og áhættustýringar hjá GAMMA, verður staðgengill forstjóra. Agnar Tómas Möller verður framkvæmdastjóri sjóða.

Um leið lætur Lýður Þór Þorgeirsson af störfum hjá GAMMA. Eru honum þökkuð störf hans og ánægjulegt samstarf undanfarin ár og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Skerpt á ábyrgð og verkaskiptingu

„Þessar skipulagsbreytingar ná fram tveimur mikilvægum markmiðum í rekstri GAMMA. Skerpt er enn betur á ábyrgð og verkefnum stjórnendateymisins á Íslandi með Valdimar Ármann í forystu mjög öflugs hóps einstaklinga. Starfsmenn og sjóðsstjórar GAMMA hafa náð framúrskarandi árangri undanfarin ár með frábærri ávöxtun sjóða og fyrirtækjaverkefna. Valdimar hefur gegnt lykilhlutverki í þeirri þróun og býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og mikilli reynslu af fjármálamarkaði,“ segir Gísli Hauksson fráfarandi forstjóri.

„Á sama tíma gefst mér kostur á að stíga til hliðar í daglegri stjórn GAMMA á Íslandi eftir að verða níu ár í forstjórastóli og einbeita mér að uppbyggingu og vexti starfseminnar í Lundúnum og New York samhliða stjórnarformennsku félagsins hér á Íslandi. Það er í takt við áform GAMMA að bjóða viðskiptavinum fjölbreytta eignadreifingu og fjárfestingartækifæri erlendis.“

Um Valdimar Ármann og Ingva Hrafn

Valdimar Ármann er með víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði og er með fyrstu starfsmönnum GAMMA á upphafsárum félagsins. Áður en hann kom til starfa hjá GAMMA starfaði hann um 7 ára skeið í Lundúnum og New York við verðbólgutengd afleiðuviðskipti, fyrst hjá ABN AMRO og síðast hjá Royal Bank of Scotland. Valdimar er einnig aðjúnkt við Háskóla Íslands og kennir hann nú meðal annars námskeiðið Skuldabréf í meistaranámi í fjármálahagfræði. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum í Lundúnum, New York og á Íslandi.

Ingvi_hrafn_oskarsson

Ingvi Hrafn Óskarsson hefur undanfarin ár starfað sem lögmaður og verið meðeigandi að lögfræðiskrifstofunniLögmenn Lækjargötu. Áður starfaði Ingvi um sjö ára skeið fyrir Íslandsbanka hf. og áður Glitni banka hf., meðal annars sem forstöðumaður lögfræðiráðgjafar og sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf. Þá var hann aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra. Ingvi hefur auk embættisprófs í lögum frá Háskóla Íslands lokið meistaraprófi (LL.M.) í lögum frá Columbia háskóla í New York og meistaraprófi (M.Sc.) í fjármálum frá London Business School. Þá hefur hann enn fremur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Um GAMMA Capital Management

Fjármálafyrirtækið GAMMA Capital Management hefur vaxið hröðum skrefum síðustu ár og er nú með rúmlega 120 milljarða króna í stýringu fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Viðskiptavinir félagsins eru stofnanafjárfestar eins og lífeyrissjóðir og tryggingafélög, efnameiri einstaklingar og bankastofnanir, innlendar og erlendar. Þá eru sjóðir í rekstri hjá GAMMA meðal stærstu fjárfesta á íslenskum fasteignamarkaði og reka meðal annars yfir 1.250 íbúðir ásamt því að standa að byggingu og þróun hátt í 1.800 íbúða. Fasteignastarfsemi sjóða í rekstri hjá GAMMA er rekin af félögunum Almenna leigufélaginu, Upphafi fasteignafélagi og Heild fasteignafélagi. Sömuleiðis eru stærstu fyrirtækjaskuldabréfasjóðir á Íslandi í rekstri hjá GAMMA, sem einnig býður upp á fjölbreytt úrval sjóða fyrir stofnanafjárfesta og almenning. Sjóðirnir fjárfesta meðal annars í hlutabréfum, ríkisskuldabréfum, innlánum og fleiru.

Þriðja starfsstöðin í New York

Aðalskrifstofur fyrirtækisins eru í Reykjavík en frá árinu 2015 hefur GAMMA einnig haft starfsemi í Lundúnum og fékk á síðasta ári sjálfstætt starfsleyfi frá breska fjármálaeftirlitinu. Þá opnar GAMMA þriðju starfsstöð sína í New York í Bandaríkjunum á þessu ári. Er það til marks um áherslu fyrirtækisins á nýtingu tækifæra á erlendri grundu að Gísli Hauksson, fráfarandi forstjóri, stýri þeim vexti ásamt því að móta framtíðarstefnu sem stjórnarformaður GAMMA.

Erlendis kemur GAMMA að fjölbreyttum fyrirtækjaverkefnum fyrir íslenska viðskiptavini og sinnir fjárfestingarráðgjöf ásamt því að reka sjóði á Írlandi sem fjárfesta á Íslandi. GAMMA er með samstarfssamninga við mörg öflugustu fjármálafyrirtæki heims sem auðveldar viðskiptavinum félagsins eignadreifingu sparnaðar og opnar dyr að fjölbreyttum fjárfestingarmöguleikum.

Senda grein