Fréttir



Vísitölur GAMMA júlí 2018

1.8.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,19% í júlí og nam meðaldagsveltan 4,5 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 14,2 milljarða og er 2.842 milljarðar. 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Ytd-visitolur-jul-2018

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,04% í júlí og nam meðal dagsveltan 2,2 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,57% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,10%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 16,5 ma. og er nú 1.606 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,04 og er 7,62 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 1,23% í júlí og nam meðaldagsveltan 720 milljónum, þar af lækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,30% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 475 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.200 mln nom], ARION CBI 48 [980 mln nom], ISLA CBI 24 [260 mln nom], ISLA CBI 26 [680 mln nom], LBANK CBI 24 [420 mln nom], ISLA CB 23 [500 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14,3 ma. í mánuðinum og er 513,1 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði lítillega milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar stóð í stað milli mánaða og er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 67,2%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-ft-jul-2018

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 5,9% í júlí og nam meðaldagsveltan 1,6 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 45 ma. í mánuðinum og er 723 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í EIM (+10,1%) og N1 (+5,0%) en mest lækkun var á bréfum ICEAIR (-32,9%) og VIS (-10,2%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júlí 2018

Mom-hlbr-jul-2018

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein