Fréttir



Vísitölur GAMMA febrúar 2017

Yfirlit

2.3.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í febrúar og nam meðaldagsveltan 8,2 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,3% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,1%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í febrúar og nam meðaldagsveltan 8,2 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 1 milljarð og er 2.602 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,3% í febrúar og nam meðal dagsveltan 3,7 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 0,4% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,9%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkar um 17 ma. og er nú 1.542 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,0 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í febrúar og nam meðaldagsveltan 453 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,3% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 313 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 29 [500 mln nom], LBANK CBI 22 [380 mln nom], LBANK CBI 28 [480 mln nom], LBANK CB 19 [500 mln nom], LBANK CB 21 [1.320 mln nom],LSS34 [970 mln nom] og RVKN 35 1 [460 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 3 ma. í mánuðinum og er 294 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 milli mánaða og er 6,8 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 63,7%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,1% í febrúar og nam meðaldagsveltan 4,1 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 16 ma. í mánuðinum og er 767 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Marel (+18,5%) og Síminn (+12,5%) en mest lækkun var í bréfum Icelandair (-32,6%) og Högum (-5,2%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í febrúar 2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein