Fréttir



Vísitölur GAMMA apríl 2016

2.5.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í apríl og nam meðaldagsveltan 7,4 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,2% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,1% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í apríl og nam meðaldagsveltan 7,4 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 84 milljarða og er 2.433 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,2% í apríl og nam meðal dagsveltan 4,8 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,1% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,2%. Gefin voru út bréf í flokki RB20 [510 mln nom] og RB17 [4.700 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. RB16 dettur út úr vísitölunni þessi mánaðamót þar sem styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga bréfsins.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 75 ma. í mánuðinum og er nú 1.432 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,3 og er 7,9 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,1% í apríl og nam meðaldagsveltan 407 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,3% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 359 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokki LBANK CBI 22 (560 mln nom) sem hækkar hlutfall hans í vísitölunni. ISLA CB 16 [2.820 mln nom] dettur út úr vísitölunni um mánaðamótin þar sem styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga bréfsins.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 1 ma. í mánuðinum og er 240 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 7,2 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 68,0%. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

 

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í apríl og nam meðaldagsveltan 2,2 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 4 ma. í mánuðinum og er 765 ma.

Að teknu tilliti til arðgreiðslna hækkuðu bréf mest í N1 (+9,3%) og Marel (+5,8%) en mest lækkun var í bréfum Símans (-8,5%) og Vodafone (-6,2%).

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í apríl

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein