Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA júní 2014

2.6.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok maí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir júní 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,5% í maí. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 0,7% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi lækkaði um 0,2%. Meðaldagsvelta GBI var 4,5 ma., þar af 1,7 ma. með verðtryggt og 2,8 ma. með óverðtryggt.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði og er nú 30,7% sem er lækkun um 0,2 prósentustig frá maí mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 8 ma. og er nú 1.434 ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 8,3 ár.

Gefin voru út bréf í flokkum RIKB16 og RIKB20 í mánuðinum. Hlutfall flokkanna hækkar þó einungis lítillega vegna lækkana í óverðtryggða hluta vísitölunnar í mánuðinum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

 

Senda grein