Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA mars 2014

4.3.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok febrúar, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir mars 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 1,0% í febrúar. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 1,2% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi lækkaði um 0,7%. Meðaldagsvelta GBI var 6,7 ma., þar af 1,8 ma. með verðtryggt og 4,8 ma. með óverðtryggt.

 
Nýtt óverðtryggt ríkisbréf, RIKB 20 0205, var gefið út í mánuðinum og er tekið inn í vísitöluna þessi mánaðamót. Hlutfall RB20 í heildarvísitölunni er 0,7% og er 2,2% í óverðtryggða hlutanum. Auk þess voru gefin út 520m bréf í RB16 sem hækkar hlutfall þess í vísitölunni.
 
Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 29,7% sem er 0,4% hækkun frá janúar mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 24 ma. og er nú 1.397 ma. Líftími vísitölunnar stóð í stað og er 8,5 ár.
 
Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.
 
Senda grein