Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA febrúar 2014

3.2.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok janúar, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir febrúar 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,1% í janúar. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 0,3% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,1%. Meðaldagsvelta GBI var um 7,7 ma., þar af 2,4 ma. með verðtryggt og 5,3 ma. með óverðtryggt.

Engar útgáfur voru í vísitölunni í janúarmánuði og breyttust vigtir því lítillega. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 29,3% sem er 0,1% hækkun frá desember mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 3ma og er nú 1.422ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er nú 8,5 ár.

Mánaðaryfirlit með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein