Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA janúar 2014

2.1.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok desember, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir janúar 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,7% í desember og hækkaði um 3,0% árið 2013. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 0,8% og hækkaði um 2,1% árið 2013 og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi lækkaði um 0,4% og hækkaði um 5,5% árið 2013.Meðaldagsveltan var um 7,1ma og var um 7,1ma að meðaltali árið 2013.
 
Gefnar voru út 650 milljónir nom. í RIKB15 í desember. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 29,2% sem er 0,3% hækkun frá nóvember mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 21ma og er nú 1.425ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er nú 8,6 ár.
 
Mánaðaryfirlit með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein