Fréttir



Endurstilling vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa

1.10.2013 Vísitölur

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa - GAMMA: CBI - er endurstillt mánaðarlega, líkt og Skuldabréfavísitala GAMMA.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa - GAMMA: CBI - er endurstillt mánaðarlega, líkt og Skuldabréfavísitala GAMMA. Þá falla út þau bréf sem hafa styttra en 6 mánuði í lokagjalddaga og ný bréf eru tekin inn. Að þessu sinni dettur ekkert bréf út en ARION CBI 19, sem skráð var á markað með viðskiptavakt í mánuðinum, kemur inn. Hlutfall þess í vísitölunni er nú um 2,5% og er 12. skuldabréfið í vísitölunni. Heildarmarkaðsvirði vísitölunnar er nú 122 milljarðar króna.
 
Ávöxtun vísitölunnar var 1,08% í september og hefur verið 10,44% það sem af er ári.
 
Hlutfallsleg samsetning Fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA við endurstillingu fyrir október 2013

Nánari upplýsingar um vísitöluna má sjá hér: http://www.gamma.is/visitolur/

Einnig má hafa samband við Ellert Arnarson hjá GAMMA fyrir frekari upplýsingar og gögn.
Senda grein