Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA júní 2012

1.6.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok maí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir júní.
Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,4% í maí og er árshækkun hennar 2,7%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 1,3% og hefur hækkað um 3,6% á árinu en óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 2,1% og hefur nú  hækkað um 0,9% á árinu. 

Meðaldagsveltan jókst aftur eftir rólegan apríl mánuð, og var hún 11,1ma en það sem af er ári hefur meðaldagsveltan verið 12,5ma.

Engin útgáfa var af skuldabréfum í maí og eru því litlar breytingar á vigtum skuldabréfa. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,3% í 27,1%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 12ma og er nú 1.455ma og líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 ár og er nú 9,12 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300. 

Senda grein