Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA maí 2012

2.5.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok apríl, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir maí.
Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,9% í apríl og er árshækkun hennar 3,2%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,2% hefur hækkað um 5% á árinu en óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,3% og hefur nú  lækkað um 1,1% á árinu. 
 
Litlar breytingar eru á vigtum skuldabréfa fyrir maí mánuð. Lítil útgáfa var í apríl og einungis voru gefnir út 2,9ma í RB14. Einnig var greidd afborgun af HFF34 og vaxtagreiðsla af RIKS21.  Líftími vísitölunnar er nú 9,25 ár og markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 6ma og er nú 1.467ma.
 

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein