GAMMA styrkir lestrarátak í grunnskólum
GAMMA hefur samið við Þorgrím Þráinson rithöfund um að efla læsi grunnskólanema.
GAMMA Capital Management hefur samið við Þorgrím Þráinsson rithöfund um samstarf sem felst í því að hann heimsæki grunnskólanema með fyrirlestur um skapandi skrif, með það að markmiði að efla læsi og styrkja þar með sjálfsmynd nemenda að því er kemur fram í tilkynningu.
Verkefnið hefst á árinu 2018 og er stefnt að því að Þorgrímur muni þá bjóða upp á fyrirlesturinn fyrir nemendur í 4.- 6. bekk í liðlega tuttugu skólum.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að geta stutt við þetta mikilvæga verkefni. GAMMA er nú þegar bakhjarl Hins íslenska bókmenntafélags, sem staðið hefur vörð um íslenska tungu í tvær aldir. Við teljum afar brýnt að stuðla jafnframt að því að efla lestur og skapandi skrif á íslensku hjá grunnskólanemum og fögnum því að fá Þorgrím Þráinsson til liðs við okkur í þeirri vegferð,“ segir Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA.
„Ég hef margoft á rithöfundaferli mínum kennt skapandi skrif fyrir börn og unglinga, sagt frá því hvernig ég byggi upp söguþráð og skapa persónur, og sett nemendum fyrir verkefni. Slíkt kveikir áhuga á lestri og sjálfstraust helst í hendur við læsi. Það er því mikið gleðiefni að fá tækifæri til að vinna að þessu verkefni með GAMMA, börnum til heilla,“ segir Þorgrímur Þráinsson rithöfundur.
Ragnar Jónasson, rithöfundur og framkvæmdastjóri lögfræðisviðs GAMMA, og Þorgrímur Þráinsson, við undirritun samningsins.