Skuldabréfavísitölur GAMMA

Tilgangur skuldbréfavísitalna GAMMA er að stuðla að gagnsæjum og skilvirkum markaði. Skuldabréfavísitölur GAMMA sýna ávöxtun helstu skuldabréfa á markaði.

 

Skuldabréfavísitölur GAMMA eru nýjung á íslenskum fjármálamarkaði. GAMMA birtir vísitölurnar daglega.

Skuldabréfavísitölur GAMMA eru reiknaðar og birtar af GAM Management hf., óháðu og sérhæfðu ráðgjafar- og sjóðastýringarfyrirtæki með starfsleyfi frá FME sem tekur til reksturs verðbréfasjóða og fjárfestingarráðgjafar. Vísitölurnar sýna heildarávöxtun útgefinna íbúðabréfa, ríkisbréfa og verðtryggðra ríkisbréfa, hlutfallsvigtað miðað við markaðsverðmæti hvers bréfs í hlutfalli af heildarmarkaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni. Heildarávöxtun þýðir að vaxtagreiðslur og afborganir eru í raun endurfjárfestar aftur í vísitölunni.

Skuldabréfavísitölur GAMMA

  • GAMMA: Government Bond Index - Íbúðabréf, Ríkisbréf og Verðtryggð Ríkisbréf.
  • GAMMAxi: Óverðtryggt - Ríkisbréf.
  • GAMMAi: Verðtryggt - Íbúðabréf og Verðtryggð Ríkisbréf. 

Tilgangur

Erfitt er að fylgjast með ávöxtun skuldabréfamarkaðar á Íslandi og engar vísitölur birtar sem auðvelt er að nálgast opinberlega. Það er því illmögulegt að meta árangur skuldabréfa í samanburði við aðrar ávöxtunarleiðir s.s. innlán, hlutabréf, gjaldeyri og hrávörur. Að sama skapi er ekki til opinber mælikvarði til aðmeta frammistöðu skuldabréfasjóða sem standa fjárfestum til boða á markaði og erfitt að meta hvort virk stýring sjóðstjóra sé að skila umframávöxtun sem standi undir þóknun sjóðsins.

Á gagnsæjum og skilvirkum markaði er nauðsynlegt að auðvelt sé að vita hver ávöxtun heildarmarkaðar sé til að samanburður sé fljótlegur og gagnlegur. Tilgangur skuldbréfavísitalna GAMMA er að stuðla að gagnsæjum og skilvirkum markaði.

Aðferðafræði 

Skuldabréfavísitölur GAMMA sýna hlutfallsvigtaða heildarávöxtun helstu skuldabréfa á markaði sem uppfylla ákveðin skilyrði:

  • Íbúðabréf, Ríkisbréf og Verðtryggð ríkisbréf 
  • Viðskiptavakt á skuldabréfi er skilyrði
  • Meira en 6 mánuðir í lokadag skuldabréfs

Vísitölurnar eru reiknaðar út frá opinberu lokagengi hvers dags einsog það birtist á NASDAQ OMX Nordic Exchange. Það tryggir gagnsæi og áreiðanleika vísitalnanna. Ef skuldabréf eru ekki með markaðsvakt í NASDAQ OMX Nordic Exchange er það sjálfkrafa ekki í vísitölu GAMMA.  Skuldabréf sem eru styttri en 6 mánuðir eru ekki tekin með í vísitöluna.

GAMMA birtir vísitölurnar fyrir hvern dag í lok dagsins. Á fyrsta degi hvers mánaðar eru vísitölurnar endurstilltar þ.e. of stutt skuldabréf detta út og ný skuldabréf koma inn.  Einnig eru hlutfallsvigtir hvers skuldabréfs endurstilltar miðað við markaðsverðmæti síðasta viðskiptadags mánaðarins á undan og nafnverð útistandandi bréfa.

Senda síðu

Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica