GAMMA: Total Return Fund
Fjárfestingarsjóður
Með virkri stýringu, eignadreifingu, ítarlegri greiningarvinnu, öguðum vinnubrögðum og stöðugri vöktun teljum við að fjárfestingarsjóðurinn GAMMA: Total Return Fund eigi mikla möguleika á að nýta fjárfestingarmöguleika á komandi misserum á íslenskum fjármálamarkaði. Sjóðurinn er opinn almennum fjárfestum.
GAMMA: Total Return Fund
Á tímum mikillar óvissu og umróta á fjármálamörkuðum getur sveigjanleiki og virk stýring gegnt lykilhlutverki við að ná góðri ávöxtun.
Sjóðurinn hefur þann 2. maí 2013 verið starfræktur í eitt ár og af því tilefni var gefið út ítarlegra upplýsingablað um sjóðinn og hugmyndafræðina sem má nálgast hér.
Nánari upplýsingar
-
Gengisuppreikningur daglega
- Viðskiptadagar miðast við kl. 14:00 og er uppgjörsdagur viðskipta t+3
-
Rafrænt skráður hjá Verðbréfaskráningu
Sjóðsstjóri og fjárfestingarteymi
Valdimar Ármann, sjóðsstjóri, hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur
Starfaði áður hjá ABN AMRO í London við verðbólgutengdar afurðir frá 2003-2006 og síðan í New York frá 2006-2008 hjá sama banka, og síðar hjá RBS sem Vice President, Head of Inflation Structuring USA. Valdimar kennir einnig sem aðjúnkt í meistaranámi í fjármálahagfræði hjá Háskóla Íslands.
Agnar Tómas Möller, verkfræðingur
Agnar starfaði áður í áhættustýringu og skuldabréfamiðlun Kaupþings frá 2004 til 2008. Agnar kennir einnig í meistaranámi í fjármálahagfræði hjá Háskóla Íslands.
Gísli Hauksson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri GAMMA
Gísli starfaði árin 2001-2008 hjá Kaupþingi, bæði hérlendis og í London. Stærsta hluta tímabilsins var hann Director of Fixed Income Sales en vann einnig við skuldastýringu, gjaldeyrisviðskipti og afleiðumiðlun.
Guðmundur Björnsson, verkfræðingur
Guðmundur var á árunum 2005-2008 forstöðumaður Afleiðuviðskipta Kaupþings. Guðmundur hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og hefur kennt afleiðuhluta þess prófs síðustu árin.
Lýður Þór Þorgeirsson, MBA & B.Sc. rafmagns- og tölvuverkfræði
Lýður vann hjá skilanefnd Kaupþings og þar áður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi. Árin 2000-2005 starfaði Lýður hjá Glitni við skuldsetta fjármögnun fyrirtækja. Lýður er með MBA frá MIT Sloan.
Áhætta
Valdimar Ármann veitir frekari upplýsingar um sjóðinn í síma 519-3304 eða á valdimar@gamma.is
Reglur og fjárfestingarstefnu, útboðslýsingu og útdrátt úr útboðslýsingu má finna hér til hliðar.
Skattlagning
Skattaleg meðferð hlutdeildarskírteina í Fjárfestingarsjóði GAMMA fer eftir lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, eins og þau eru á hverjum tíma. Af hlutdeildarskírteinum í GAMMA: TRF greiðist fjármagnstekjuskattur. Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér skattalega stöðu sína og er ráðlagt að leita til sérfróðra aðila á því sviði, s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
