GAMMA: LIQUIDITY

GAMMA: LIQUIDITY (Skammtímasjóður GAMMA)

Verðbréfasjóður

GAMMA: LIQUIDITY er verðbréfasjóður sem hefur það markmið að skila ávöxtun í samræmi við skammtímavaxtastig á íslenskum skuldabréfamarkaði og er líftími sjóðsins ávallt styttri en 1 ár. 

 

Sjóðurinn hentar sérlega vel til lausafjárstýringar fyrir bæði almenna fjárfesta og fagfjárfesta.

Fjárfestingarmarkmið

Fjárfestingarmarkmið sjóðsins er að skila ávöxtun í samræmi við skammtímavaxtastig á markaði. Líftími sjóðsins er ávallt styttri en 1 ár. Virk stýring gefur möguleika á umframávöxtun yfir innlánavexti og ávöxtun skammtímaskuldabréfa.

GAMMA: LIQUIDITY fjárfestir eingöngu í vel tryggðum skuldabréfum útgefnum af:

  • Ríkissjóði
  • Aðilum með ríkisábyrgð s.s. Íbúðalánasjóði  

Einnig er heimild til fjárfestinga í innlánum að hámarki 80% af stærð sjóðsins. Leitast verður við að takmarka áhættu vegna innlána með því að dreifa þeim á fleiri en einn aðila.

Virk fjárfestingarstefna

GAMMA: LIQUIDITY beitir virkri fjárfestingarstefnu með þeirri aðferðafræði sem GAMMA hefur þróað og notað við stýringu annarra skuldabréfasjóða GAMMA.  Sú aðferðarfræði  býður upp á góða möguleika á að skila umframávöxtun miðað við skammtímaávöxtun markaðar sem og sambærilega sjóði.

Virk fjárfestingarstefna felur t.a.m í sér að skipta á milli óverðtryggðra og verðtryggðra bréfa og milli innlána og skuldabréfa og/eða víxla. Einstaka eignir sjóðsins geta haft lengri líftíma en 1 ár en meðallíftími sjóðsins skal vera styttri en 1 ár.

Á tímum mikillar óvissu og umróta á fjármálamörkuðum getur sveigjanleiki og virk stýring gegnt lykilhlutverki við að ná góðri ávöxtun.
 

Af hverju GAMMA: LIQUIDITY

  • Skammtímasjóður með virkri stýringu
  • Lág umsýsluþóknun 0,40% 
  • Enginn munur á kaup- og sölugengi
  • Engin kaup- eða söluþóknun
  • Rafrænt skráður; fjárfestar geta því geymt skírteini í sjóðnum hjá hvaða bankastofnun sem er

 

Nánari upplýsingar

  • Gengisuppreikningur daglega
  • Rafrænt skráður hjá Verðbréfaskráningu

 

Nánari upplýsingar má nálgast í útboðslýsingu, útdrætti og reglum hér til hliðar.

 

Skattlagning

Skattaleg meðferð hlutdeildarskírteina í Skammtímasjóði GAMMA fer eftir lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, eins og þau eru á hverjum tíma. Af hlutdeildarskírteinum í Skammtímasjóði GAMMA greiðist fjármagnstekjuskattur. Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér skattalega stöðu sína og er ráðlagt að leita til sérfróðra aðila á því sviði, s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.

 

 

Árshlutareikning Verðbréfasjóðs GAMMA má finna hér.
Senda grein




Upplýsingablað Fjárfesta í sjóði

Almennt

Stofnár 2011
Rekstrarform Verðbréfasjóður
Lágm. kaup 10.000 kr.
Hámarksstærð Ekkert hámark
Sjóðsstjóri Valdimar Ármann

Þóknanir

Árleg þóknun 0,40%
Gengismunur 0,00%
Kaupþóknun 0,00%
Innlausnargjald 0 kr

Fjárfesting í sjóði

Kaup/innlausn T+1
Viðmiðunartími Fyrir kl 14:00

Ítarefni

Fyrirvari:

Umfjöllun þessi felur ekki í sér fjárfestingarráðgjöf eða tilboð eða hvatningu um að eiga viðskipti með verðbréf. Mat, álit og forspár endurspegla eingöngu skoðanir þeirra starfsmanna GAM Management hf. sem vinna umfjöllunina og eru þær settar fram eftir bestu samvisku miðað við útgáfudag og kunna að breytast án fyrirvara. Þó svo upplýsingar þær sem birtast í þessari umfjöllun komi frá heimildum sem við teljum vera áreiðanlegar og þó svo við höfum lagt okkur fram um að tryggja áreiðanleika upplýsinganna á útgáfudegi þá ábyrgjumst við ekki beint eða óbeint notagildi þeirra varðandi forspá um framtíðarávöxtun eða mat á núverandi verðgildi eða framtíðarverðgildi verðbréfa. Umfjöllunin ætti hvorki að skoðast sem fullnægjandi lýsing á þeim verðbréfum né á þeim mörkuðum sem hér er vitnað til. Skoðanir, sem látnar eru í ljós, kunna að vera ólíkar skoðunum á sama efni sem látnar eru í ljós af öðrum starfsmönnum GAM Management hf. og stafar það af því að beitt er mismunandi forsendum eða aðferðafræði. GAM Management hf. er rekstrarfélag Verðbréfasjóðs GAM Management. Sjóðurinn er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Nánari upplýsingar um áhættu og fjárfestingar má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á heimasíðu GAM Management hf. eða á skrifstofu félagsins.  Almennt fylgir áhætta fjárfestingu í verðbréfasjóðum og  eignarhlutdeild getur rýrnað, aukist eða staðið í stað, m.a. vegna áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðils þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Athygli er vakin á því að söguleg ávöxtun gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica