PIMCO

GAMMA er samstarfsaðili PIMCO á Íslandi

GAM Management hf [GAMMA] hefur gert samstarfssamning við PIMCO Europe Ltd þar sem GAMMA verður samstarfsaðili PIMCO á Íslandi, eins stærsta og virtasta sjóðastýringarfyrirtæki heims.

Í hverju felst samstarfið?
GAMMA mun sjá um markaðssetningu á sjóðum PIMCO hér á landi til fagfjárfesta. Einnig mun GAMMA skipuleggja árlega ráðstefnu sem haldin verður hérlendis fyrir íslenska fjárfesta þar sem fulltrúar PIMCO munu fara yfir greiningar félagsins á þróun og horfum í alþjóðlegum efnahagsmálum. GAMMA mun einnig miðla efni frá PIMCO um efnahagsmál til fjárfesta á Íslandi.

Um PIMCO
PIMCO var stofnað árið 1971 og er eitt umsvifamesta sjóðastýringarfyrirtæki í heimi með um 1.300 milljarða USD í stýringu um mitt ár 2011 (eða um 95 falda landsframleiðslu Íslands). PIMCO veitir einnig ráðgjöf og eignastýringarþjónustu til fagfjárfesta s.s. tryggingarfélaga, seðlabanka, fyrirtækja og góðgerðastofnana. Frá stofnun hefur PIMCO stefnt að því að viðhalda og vernda eignir viðskiptavina sinna með áhættustýringu og ávöxtun að leiðarljósi. Félagið hefur upp á að bjóða fjölbreytt úrval fjárfestingarkosta í fjölda eignaflokka. Meðal viðskiptavina PIMCO eru milljónir einstaklinga, mörg stærstu tryggingarfélög og lífeyrissjóðir heims, góðgerðarsamtök ofl. Hjá PIMCO starfa um 1.800 manns á 11 skrifstofum í Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu og Ástralíu. PIMCO er í eigu Allianz S.E. Þekktasti sjóður þeirra er Total Return Fund sem er stærsti verðbréfasjóður í heimi sem Bill Gross stofnandi PIMCO stýrir. Frekari upplýsingar um PIMCO má finna á vefsíðu félagsins http://www.pimco.com.

Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA um samninginn við PIMCO:
,,Við hjá GAMMA eru sérlega ánægðir með að hefja samstarf við PIMCO enda er orðspor þeirra traust og árangur sjóða þeirra einstakur. Fyrst um sinn geta íslenskir fagfjárfestar sem eiga frjálsan gjaldeyri fjárfest í sjóðum PIMCO.  Ég býst við að þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt sem vonandi verður sem fyrst,  muni alþjóðlegir verðbréfasjóðir PIMCO koma íslenskum fjárfestum vel meðal annars við að auka áhættudreifingu eigna sinna.“

Upplýsingar um sjóði PIMCO veitir Valdimar Ármann hjá GAMMA í síma 519-3300

Senda síðu

Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica