GAM Management hf [GAMMA]

GAM Management hf [GAMMA] er rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr.  161/2002 um fjármálafyrirtæki, stofnað í júní 2008.

Starfsleyfi GAMMA tekur til reksturs verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu, fjárfestingarráðgjafar og vörslu og stjórnun fjármálagerninga í sameiginlegri fjárfestingu.

GAMMA er með rúmlega 20 ma króna í stýringu fyrir m.a. lífeyrissjóði, tryggingarfélög, bankastofnanir, fyrirtæki, erlenda aðila og einstaklinga.

Stofnendur félagsins voru Gísli Hauksson hagfræðingur og Agnar Tómas Möller verkfræðingur.

Stjórn félagsins skipa:

  • Einar Hálfdanarson, hæstarréttarlögmaður, löggiltur endurskoðandi, MBA, stjórnarformaður
  • Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður, stjórnarmaður
  • Örn Þorsteinsson, viðskiptafræðingur, stjórnarmaður


Teymi

Fyrirsagnalisti

Agnar Tómas Möller

verkfræðingur
netfang: agnar(at)gamma.is
sími: 519-3302

 

Agnar Tómas Möller hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði í 10 ár, fyrst hjá Búnaðarbanka Íslands og síðan Kaupþingi. Agnar byrjaði í greiningardeild með áherslu á íslensk skuldabréf. Árin 2004–2006 var hann í áhættustýringu Kaupþings og m.a. um þróun og forritun hugbúnaðar til stýringar á markaðsáhættu Kaupþings og eftirlit með markaðsáhættu bankans. Frá árinu 2006 til byrjunar árs 2008 vann Agnar í skuldabréfamiðlun Kaupþings. Árið 2008 var Agnar sjóðsstjóri GPS Invest, fjárfestingarfélags sem sérhæfði sig í fjárfestingum í íslenskum skuldabréfum. Einnig hefur Agnar sinnt kennslu við Háskóla Íslands og kennir m.a. nú námskeiðið Skuldabréf í meistaranámi í hagfræði.

 

 

dr. Ásgeir Jónsson

hagfræðingur
netfang: asgeir(at)gamma.is
sími: 519-3306

 

Ásgeir hóf starfsferillinn sem hagfræðingur hjá Verkamannafélaginu Dagsbrún árið 1994 og ritstjóri Vísbendingar árið 1995. Árið 2000 hóf hann störf á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands  og varð lektor hjá Hagfræðideild árið 2004. Ásgeir tók við starfi sem aðalhagfræðingur Kaupþings árið 2004 og forstöðumaður Greiningardeildar Kaupþings 2006 (síðar Arion Banki). Árið 2011 fór hann aftur í fulla stöðu sem lektor við samhliða því vera efnahagsráðgjafi hjá GAMMA. Ásgeir vann ýmsar viðurkenningar  á námsferli sínum og hefur skrifað greinar og bækur um ýmis mál tengd hagfræði, hagsögu og bókmenntum. Nýjasta bók Ásgeirs ,,Why Iceland" var gefin út af McGraw-Hill í Bandaríkjunum árið 2009.

 

 

 

Gísli Hauksson

hagfræðingur
netfang: gisli(at)gamma.is
sími: 519-3301

 

Gísli Hauksson er framkvæmdastjóri GAMMA. Gísli er með 12 ára reynslu af störfum á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.  Gísli starfaði áður sem Director Fixed Income Sales (skuldabréfaviðskipti og afleiður) hjá Kaupþingi á Íslandi frá 2006 til febrúar 2008, frá 2004-2006 var hann Director Fixed Income and FX hjá Kaupþingi í London og þar áður í skuldastýringu Kaupþings (Búnaðarbanka Íslands áður). Árið 2008 var Gísli sjóðsstjóri GPS Invest, fjárfestingarfélags sem sérhæfði sig í fjárfestingum í íslenskum skuldabréfum. Gísli lauk prófi í verðbréfaviðskiptum hér á landi árið 2001 og í London árið 2004.

 

Guðmundur Björnsson

verkfræðingur
netfang: mummi(at)gamma.is
sími: 519-3303

 

Guðmundur Björnsson var forstöðumaður Afleiðuviðskipta Kaupþings frá 2005 fram í september 2008. Þar hafði hann yfirumsjón með verðlagningu og áhættuvörn vegna afleiðuviðskipta í tengslum við gjaldeyri, vexti og skuldabréf ásamt þróun á afleiðuvörum og afleiðutengdum skuldabréfum. Guðmundur er með 11 ára reynslu af afleiðuviðskiptum og hóf störf í afleiðuviðskiptum hjá Búnaðarbanka Íslands þar sem hann vann að þróun og hönnun afleiða. Guðmundur hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum hér á landi og hefur kennt afleiðuhluta þess prófs síðustu árin ásamt því að hafa starfað sem stundakennari við HR.

 

Ingvi Hrafn Óskarsson

héraðsdómslögmaður 
netfang: ingvi@ghp.is 
sími: 775-8830 

Ingvi Hrafn Óskarsson, sem er meðeigandi á lögfræðistofunni Lögmenn Lækjargötu ehf, er lögfræðilegur ráðgjafi GAMMA ásamt því að sinna verkefnum tengdum regluvörslu félagsins. Ingvi er héraðsdómslögmaður með LLM gráðu í félagarétti og löggjöf fjármálamarkaða frá Columbia háskóla í NY og M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja frá London Business School. Einnig hefur Ingvi lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Ingvi starfaði áður hjá Glitni/Íslandsbanka á árunum 2004-2011, sem m.a. verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf og forstöðumaður lögfræðiráðgjafar. Einnig hefur Ingvi verið aðjúnkt við Háskóla Íslands og stundakennari við lagadeild

 

Jón Gunnar Jónsson

B.Sc. í fjármálaverkfræði
netfang: jongunnar(at)gamma.is
sími: 519-3300

 
Jón Gunnar lauk B.Sc. námi í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Jón Gunnar starfaði áður hjá Íslandsbanka/Glitni.

 

Lýður Þór Þorgeirsson

MBA & B.Sc. rafmagns- og tölvuverkfræði
netfang: lydur(at)gamma.is
sími: 519-3305

 

Lýður Þorgeirsson hefur starfað við ýmis svið bankareksturs síðasta áratug.
Hann vann hjá skilanefnd Kaupþings sem lánastjóri erlendra lána og við ýmis
sérverkefni en starfaði þar áður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi og Nýja
Kaupþingi.  Árin 2000-2005 starfaði Lýður hjá Glitni bæði við skuldsetta
fjármögnun evrópskra fyrirtækja (leveraged finance) og við áhættustýringu með
áherslu á eftirlit með markaðs- og mótaðilaáhættu. Lýður hefur jafnframt sinnt
kennslu og kennt bæði verðmat fyrirtækja og gerð áreiðanleikakannana í
háskólum. Hann  hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er
rekstrarhagfræðingur með MBA frá MIT
Sloan.

 

Valdimar Ármann

hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur

netfang: valdimar(at)gamma.is
sími: 519-3304

 
Valdimar Ármann starfaði um 7 ára skeið í London og New York við verðbólgutengd afleiðuviðskipti. Valdimar starfaði hjá ABN AMRO í London við verðbólgutengdar afurðir frá 2003-2006 og síðan í New York frá 2006-2008 hjá sama banka, og síðast hjá Royal Bank of Scotland sem Vice President, Head of Inflation Structuring USA. Valdimar starfaði árin 2000-2002 hjá Búnaðarbankanum í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum. Valdimar hefur sinnt kennslu við Háskóla Íslands og kennir hann nú námskeiðið Skuldabréf í meistaranámi í fjármálahagfræði. Valdimar hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum í London, New York og á Íslandi.

 

Reglur, samþykktir, ofl

Reglur um hæfi lykilstarfsmanna GAMMA má finna hér.

Starfsreglur stjórnar GAMMA má finna hér.

Reglur um meðferð kvartana viðskiptamanna má finna hér.

Úrskurðar- og réttarúrræði viðskiptavina má finna hér.

Yfirlýsingu um stjórnarhætti félagsins má finna hér.

Reglur um viðskipti starfsmanna félagsins má finna hér.

Þeir eigendur félagsins sem eiga meira en 5% eru MP Banki [37%], Ægir Invest ehf [26%] (Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA á 100% hlutafjár í Ægi Invest ehf), Agnar Tómas Möller [26%] og Volga ehf [8%] (Guðmundur Björnsson á 100% hlutafjár í Volga ehf).

Ársreikningar og árshlutareikningar GAMMA liggja frammi á skrifstofum félagsins á Klapparstíg 29 101 Reykjavík

Árshlutareikning Verðbréfasjóðs GAMMA má finna hér.

 


Hafa samband

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica