Fréttir



Vísitölur GAMMA september 2017

2.10.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,70% í september og nam meðaldagsveltan 7,0 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 7 milljarða og er 2.742 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

 

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-SEPT-2017

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, lækkaði um 0,49% í september og nam meðal dagsveltan 4,2 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 0,46% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,57%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 1,2 ma. og er nú 1.607 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,11 og er 7,80 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,42% í ágúst og nam meðaldagsveltan 1059 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,57% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 960 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [440 mln nom], ISLA CBI 24 [1.000 mln nom], ISLA CBI 30 [4.400 mln nom], LBANK CBI 24 [320 mln nom], LBANK CBI 28 [2.860 mln nom], LBANK CB 21 [480 mln nom], LSS150434 [400 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 17,8 ma. í mánuðinum og er 389,8 milljarðar. Líftími vísitölunnar stendur í stað milli mánaða og er 6,8 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 66,2%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-SEPT-2017

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í september og nam meðaldagsveltan 2,2 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 10 ma. í mánuðinum og er 745 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í TM (+3,1%) og VIS (+2,1%) en mest lækkun var á bréfum GRND (-8,5%) og Símans (-5,6%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í ágúst 2017

MOM-HLBR-SEPT-2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

 

Senda grein