Fréttir



Vísitölur GAMMA nóvember 2016

2.12.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í nóvember og nam meðaldagsveltan 7,2 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,5% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,1% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í nóvember og nam meðaldagsveltan 7,2 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 21 milljarð og er 2.524 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,5% í nóvember og nam meðal dagsveltan 5,2 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,6% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,3%. Gefin voru út bréf í flokki RB22 [2.200 mln nom] sem hækkar hlutfall flokksins í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 10 ma. og er nú 1.528 ma. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur milli mánaða og er 8,0 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,1% í nóvember og nam meðaldagsveltan 548 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,1% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 450 milljónum.

Nýtt skuldabréf er tekið inn í vísitöluna um mánaðamótin, LBANK CB 21[1.660 mln nom]. Auk þess voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 21 [260 mln nom], ISLA CBI 22 [760 mln nom], ISLA CBI 26 [2.040 mln nom], LBANK CBI 22 [640 mln nom], LBANK CBI 28 [320 mln nom], ARION CB 22 [880 mln nom], ISLA CB 23 [1.480 mln nom], LBANK CB 19 [1.300 mln nom] og LSS34 [410mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 8 ma. í mánuðinum og er 275 milljarðar. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur milli mánaða og er 7,0 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 65,8%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í nóvember og nam meðaldagsveltan 1,7 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 4 ma. í mánuðinum og er 736 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Sjóvá (+9,5%) og Reginn (+4,5%) en mest lækkun var í bréfum Granda (-2,6%) og Marel (-2,2%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í nóvember 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein