Fréttir



Vísitölur GAMMA maí 2017

2.6.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í maí og nam meðaldagsveltan 7,1 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 45 milljarða og er 2.761 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Screen-Shot-2017-06-02-at-13.04.32

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,6% í maí og nam meðal dagsveltan 3,3 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,6% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,6%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 29,1 ma. og er nú 1.610 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,03 og er 7,95 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,6% í maí og nam meðaldagsveltan 685 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,5% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 650 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.300 mln nom], ISLA CBI 22 [4.420 mln nom], ISLA CBI 24 [4.060 mln nom], ISLA CBI 30 [7.320 mln nom], LBANK CBI 28 [1.100 mln nom], LSS150434 [280 mln nom], RVKN 35 1 [400 mln nom] og REGINN290547 [7.060 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 28 ma. í mánuðinum og er 345 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar lítillega milli mánaða og er 6,8 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 63,9%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA 

Screen-Shot-2017-06-02-at-13.04.08

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í maí og nam meðaldagsveltan 3,2 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 12,1 ma. í mánuðinum og er 806 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í VÍS (+2,2%) og Reginn (+1,1%) en mest lækkun var á bréfum Icelandair (-6,0%) og Granda (-5,6%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í maí 2017 

Screen-Shot-2017-06-02-at-13.04.21

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein