Fréttir



Vísitölur GAMMA júlí 2017

1.8.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,72% í júlí og nam meðaldagsveltan 4,1 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 33 milljarða og er 2.773 milljarðar. 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

 

YTD-visitolur-JULI-2017-rett

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,56% í júlí og nam meðal dagsveltan 2,1 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,95% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,28%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 9,1 ma. og er nú 1.609 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,06 og er 7,95 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,88% í júlí og nam meðaldagsveltan 555 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,87% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 511 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [4.620 mln nom], ISLA CBI 30 [200 mln nom], LBANK CBI 24 [400 mln nom], LBANK CBI 28 [3.420 mln nom], LSS150434 [200 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 3 ma. í mánuðinum og er 362 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 65,9%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-JULI-2017-rett

 

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,0% í júlí og nam meðaldagsveltan 1,5 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 14 ma. í mánuðinum og er 801 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Marel (+10,0%) og VOICE (+5,6%) en mest lækkun var á bréfum Haga (-10,1%) og EIK (-7,5%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júlí 2017

MOM-HLBR-JULI-2017-betri

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Gamma-6

Senda grein