Fréttir



Vísitölur GAMMA mars 2017

Yfirlit vísitalna

3.4.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,4% í mars og nam meðaldagsveltan 11,4 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 1,0% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,1% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,1%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,4% í mars og nam meðaldagsveltan 11,4 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 34 milljarða og er 2.635 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,0% í mars og nam meðal dagsveltan 8,2 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,6% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,2%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 19 ma. og er nú 1.561 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 7,9 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,1% í mars og nam meðaldagsveltan 457 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,1% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 378 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 29 [220 mln nom], ISLA CBI 22 [1.420 mln nom], ISLA CBI 26 [240 mln nom], LBANK CBI 22 [140 mln nom], LBANK CBI 28 [1.020 mln nom], ARION CB 22 [1.040 mln nom], ISLA CB 19 [160 mln nom], LBANK CB 19 [1.960 mln nom], LBANK CB 21 [200 mln nom] og LSS34 [210 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 9 ma. í mánuðinum og er 303 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 63,7%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,1% í mars og nam meðaldagsveltan 3,2 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 5 ma. í mánuðinum og er 772 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í VÍS (+14,6%) og Vodafone (+13,5%) en mest lækkun var í bréfum N1 (-12,9%) og Icelandair (-6,0%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í mars 2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein