Fréttir



Vísitölur GAMMA desember 2017

2.1.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,09% í desember og nam meðaldagsveltan 4,9 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 73 milljarða og er 2.744 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-DES-2017

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,05% í desember og nam meðal dagsveltan 2,3 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,31% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,50%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 11,8 ma. og er nú 1.637 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,01 og er 7,82 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,46% í desember og nam meðaldagsveltan 738 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,37% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 630 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ISLA CBI 24 [740 mln nom], ISLA CBI 30 [480 mln nom], LBANK CBI 24 [580 mln nom], LBANK CBI 28 [640 mln nom], LBANK CB 23 [140 mln nom], LSS150434 [1.851 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 0,3 ma. í mánuðinum og er 409,0 milljarðar. Líftími vísitölunnar stóð í stað milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 65,4%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-DES-2017

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,6% í desember og nam meðaldagsveltan 1,7 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 62 ma. í mánuðinum og er 698 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í GRND (+4,8%) og VOICE (+4,0%) en mest lækkun var á bréfum ICEAIR (-5,1%) og SJOVA (-4,6%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í desember 2017

MOM-HLBR-DES-2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein