Fréttir



  • Screen-Shot-2017-02-17-at-15.02.03

Hafsteinn Hauksson til liðs við GAMMA

17.2.2017 Starfsemi

Hafsteinn Hauksson bætist við öflugt teymi starfsmanna GAMMA Capital Management með starfsaðstöðu í London.

Hafsteinn Hauksson hefur gengið til liðs við GAMMA Capital Management Ltd. í London. Hafsteinn lauk B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics. Hann hefur starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu Newstate Partners í London frá árinu 2015, en fyrirtækið sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði opinberra fjármála, þar á meðal stýringu og endurskipulagningu opinberra skulda. Hafsteinn var áður hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og starfaði einnig sem fjölmiðlamaður með námi, lengst af á fréttastofu Stöðvar 2.

Hafsteinn bætist þar með í öflugt teymi starfsmanna GAMMA með starfsaðstöðu í London. Markmið eigenda og stjórnenda GAMMA hefur verið að útvikka og styrkja grundvöll starfseminnar þar í landi. GAMMA hóf starfsemi í London árið 2015 og í fyrra fékk félagið sjálfstætt starfsleyfi frá breska fjármálaeftirlitinu í Bretlandi. Leyfið heimilar GAMMA að veita viðskiptavinum sínum víðtæka fjármálaþjónustu, sem felur meðal annars í sér fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingarráðgjöf.

Senda grein