Fréttir



Vísitölur GAMMA september 2016

3.10.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í september og nam meðaldagsveltan 9,3 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,3% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,2% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,5%.

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í september og nam meðaldagsveltan 9,3 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 5 milljarða og er 2.397 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,3% í september og nam meðal dagsveltan 5,9 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,5% á meðan sú óverðtryggða hækkaði lítillega. Gefin voru út bréf í flokki RB20 [5.505 mln nom] og RB31 [2.940 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 14 ma. og er nú 1.434 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 ár og er 7,9 ár. 

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,2% í september og nam meðaldagsveltan 692 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,8% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 508 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [400 mln nom], ARION CBI 29 [920 mln nom], ISLA CBI 26 [520 mln nom], ARION CB 22 [1.260 mln nom], ISLA CB 19 [760 mln nom], LSS24 [400 mln nom] og LSS34 [600 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 7 ma. í mánuðinum og er 260 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 ár og er 7,2 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,7 ár og verðtryggingarhlutfall 68,9%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,5% í september og nam meðaldagsveltan 2,5 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 26 ma. í mánuðinum og er 703 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Sjóvá (+8,9%) og Högum (+4,3%) en mest lækkun var í bréfum Icelandair (-11,9%) og Granda (-10,1%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í september 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein