Fréttir



Vísitölur GAMMA ágúst 2016

1.9.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 3,5% í ágúst og nam meðaldagsveltan 8,5 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 3,8% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,5% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,5%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 3,5% í ágúst og nam meðaldagsveltan 8,5 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 48 milljarða og er 2.402 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index 

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 3,8% í ágúst og nam meðal dagsveltan 6,4 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 3,7% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 4,1%. Gefin voru út bréf í flokki RB22 [4.940 mln nom] og RB31 [3.072 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. RIKB 17 dettur út úr vísitölunni um mánaðamótin þar sem styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga bréfsins.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 14 ma. og er nú 1.420 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,4 ár og er 8,0 ár. 

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,5% í ágúst og nam meðaldagsveltan 427 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,6% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 356 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [440 mln nom], ARION CBI 29 [1.280 mln nom], ISLA CBI 26 [1.940 mln nom] og LBANK CBI 22 [720 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 6 ma. í mánuðinum og er 253 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 ár og er 7,1 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,7 ár og verðtryggingarhlutfall 68,3%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,5% í ágúst og nam meðaldagsveltan 2,3 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 25 ma. í mánuðinum og er 729 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í EIM (+17,3%) og EIK (+15,8%) en mest lækkun var í bréfum Icelandair (-3,5%) og Marel (-0,6%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í ágúst 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.


Senda grein