Fréttir



Vísitölur GAMMA júlí 2016

2.8.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í júlí og nam meðaldagsveltan 4,8 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan lækkaði um 0,2% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,3% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,6%.

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í júlí og nam meðaldagsveltan 4,8 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 26 milljarða og er 2.356 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index 

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, lækkaði um 0,2% í júlí og nam meðal dagsveltan 3,4 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 1,2% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,8%. Gefin voru út bréf í flokki RB20 [2.570 mln nom] sem hækkar hlutfall flokksins í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni helst óbreytt og er nú 1.406 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,2 ár og er 7,6 ár. 

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,3% í júlí og nam meðaldagsveltan 177 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,1% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 112 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 29 [760 mln nom], LBANK CBI 22 [640 mln nom] og LSS34 [240 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 1 ma. í mánuðinum og er 247 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 ár og er 7,2 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,7 ár og verðtryggingarhlutfall 67,9%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,6% í júlí og nam meðaldagsveltan 1,4 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 26 ma. í mánuðinum og er 704 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í TM (+5,4%) og N1 (+4,5%) en mest lækkun var í bréfum Icelandair (-12,2%) og Sjóvá (-4,1%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júlí 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein