Fréttir



Vísitölur GAMMA maí 2016

1.6.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í maí og nam meðaldagsveltan 7,9 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,1% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,3%.

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í maí og nam meðaldagsveltan 7,9 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 2 milljarða og er 2.435 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,1% í maí og nam meðal dagsveltan 4,7 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,1% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,1%. Gefin voru út bréf í flokki RB20 [590 mln nom] og RB17 [3.330 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 4 ma. í mánuðinum og er nú 1.436 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 7,8 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í maí og nam meðaldagsveltan 356 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,3% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 308 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [240 mln nom], ARION CBI 29 [800 mln nom], ISLA CBI 26 [1.380 mln nom], LBANK CBI 22 [280 mln nom], ARION CB 22 [700 mln nom], ISLA CB 19 [1.000 mln nom], LBANK CB 19 [1.660 mln nom] og LSS150434 [380 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 7 ma. í mánuðinum og er 244 milljarðar. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur og er 7,2 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 68,3%. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í maí og nam meðaldagsveltan 2,9 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 13 ma. í mánuðinum og er 752 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Eimskip (+15,4%) og Símanum (+6,4%) en mest lækkun var í bréfum Icelandair  (-7,8%) og Sjóvá (-3,8%).

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í maí 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein