Fréttir



Lausafjársjóðurinn GAMMA: LIQUID

1.2.2017 Starfsemi

Lausafjársjóðurinn GAMMA: LIQUID hefur skilað 5,98% ávöxtun síðastliðna 12 mánuði.

Lausafjársjóðurinn GAMMA: LIQUID hefur skilað 5,98% ávöxtun síðastliðna 12 mánuði sem er næsthæst meðal sambærilegra sjóða (skv. keldan.is). Markmið sjóðsins er að bjóða upp á stöðuga og góða ávöxtun samhliða miklum seljanleika með því að fjárfesta í innlánum og bankavíxlum fjármálafyrirtækja. LIQUID er 9,4ma að stærð með 5,7% ávöxtunarkröfu á eignum sjóðsins (fyrir umsýsluþóknun). Líftími eigna er undir fimm mánuðum en hann hefur verið heldur lengdur vegna vaxtalækkunarferils Seðlabankans. Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður sem hentar einkar vel til ávöxtunar á fé til skemmri tíma og er opinn fyrir alla fjárfesta. Enginn kostnaður er við kaup eða sölu í sjóðnum, umsýsluþóknun er lág eða einungis 0,4% á ári og viðskipti fara fram með dagsfyrirvara.

Athygli er vakin á því að söguleg ávöxtun gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun.

Eignasamsetning

Screen-Shot-2017-02-01-at-16.45.36

 

Gengisþróun GAMMA: LIQUID

Screen-Shot-2017-02-01-at-16.39.51

Sjóðstjóri GAMMA: LIQUID

Valdimar Ármann, framkvæmdastjóri sjóða, er sjóðsstjóri LIQUID. Valdimar er menntaður hagfræðingur og með meistargráðu í fjármálaverkfræði. Valdimar starfaði á fjármálamarkaði um 7 ára skeið í London og New York áður en hann gekk til liðs við GAMMA árið 2009. Valdimar starfaði árin 2000-2002 hjá Búnaðarbankanum í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum. Ásamt störfum sínum hjá GAMMA er Valdimar er einnig aðjúnkt við Háskóla Íslands og kennir hann nú m.a. námskeiðið Skuldabréf í meistaranámi í fjármálahagfræði. Valdimar hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum í London, New York og á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar um sjóðinn s.s. lykilupplýsingar og reglur má finna á heimasíðu sjóðsins,  www.gamma.is/sjodir/gamma-liquid/  eða hjá sjóðsstjóra Valdimar Ármann email valdimar(at)gamma.is

 

Senda grein